Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   lau 28. desember 2019 21:58
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Maguire: Mjög stór þrjú stig fyrir okkur
Maguire í baráttunni í kvöld.
Maguire í baráttunni í kvöld.
Mynd: Getty Images
Harry Maguire, varnarmaður Manchester United, var glaður með 2-0 sigurinn á Burnley í ensku úrvalsdeildinni í kvöld.

„Við hefðum kannski getað verið betri á boltanum í seinni hálfleiknum og drepið leikinn, en þetta eru mjög stór þrjú stig fyrir okkur," sagði Maguire.

„Við erum lið sem höfum ekki verið að fá mikið af færum á okkur, en við höfum verið að bregðast í föstum leikatriðum og öðrum grunnatriðum. Það er gott að koma hingað, halda hreinu og vinna leikinn."

„Á okkar degi getum við unnið öll lið, en okkur hefur skort stöðugleika á þessu tímabili."

„Við stóðum okkur ekki gegn Watford og það var því mikilvægt að koma hingað, standa okkur í grunnatriðunum og halda hreinu."

Man Utd er núna í fimmta sæti, einu stigi frá Chelsea sem mætir Arsenal á morgun.
Athugasemdir
banner
banner
banner