Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   lau 28. desember 2019 15:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Merson: Klopp kæmi Rotherham í úrvalsdeildina en Guardiola þarf 90 milljón punda leikmenn
Mynd: Getty Images
Paul Merson bar saman Jurgen Klopp og Pep Guardiola í grein sinni hjá Daily Star. Það sem kemur fram í þessari grein eru því skoðanir Merson.

Guardiola stýrði City til sigurs í þremur keppnum á Englandi á síðasta tímabili á meðan Klopp vann Meistaradeildina og allt stefnir í deildartitil hjá Liverpool í vor.

„Jurgen Klopp er að sanna fyrir Guardiola á þessari leiktíð að Klopp sé sá besti í heimi," skrifaði Merson sem er einnig sérfræðingur hjá Sky Sports.

„Liverpool lét Leicester líta illa út og það er Klopp að þakka. Hann byggði liðið. Hann er að hafa betur gegn Guardiola þrátt fyrir minni upphæðir í leikmannakaupum."

„Það er það sem gerir hann að besta stjóranum. Klopp gæti komið Rotherham upp í efstu deild og gert það að úrvalsdeildarfélagi með tíma. Guardiola gæti ekki gert það. Hann þarf 80 milljónir punda eða 90 milljón punda leikmenn til að kerfi hans gangi upp. Klopp þarf það ekki. Þetta er mikið afrek sem Klopp hefur afrekað hjá Liverpool,"
skrifaði Merson.

Liverpool er með þrettán stiga forskot á toppi ensku úrvalsdeildarinnar og á auk þess leik til góða.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 34 24 5 5 82 26 +56 77
2 Liverpool 33 22 8 3 75 32 +43 74
3 Man City 32 22 7 3 76 32 +44 73
4 Aston Villa 34 20 6 8 71 50 +21 66
5 Tottenham 32 18 6 8 65 49 +16 60
6 Newcastle 32 15 5 12 69 52 +17 50
7 Man Utd 32 15 5 12 47 48 -1 50
8 West Ham 34 13 9 12 54 63 -9 48
9 Chelsea 32 13 8 11 61 57 +4 47
10 Brighton 32 11 11 10 52 50 +2 44
11 Wolves 33 12 7 14 46 53 -7 43
12 Fulham 34 12 6 16 50 54 -4 42
13 Bournemouth 33 11 9 13 48 60 -12 42
14 Crystal Palace 33 9 9 15 42 56 -14 36
15 Brentford 34 9 8 17 52 59 -7 35
16 Everton 33 10 8 15 34 48 -14 30
17 Nott. Forest 34 7 9 18 42 60 -18 26
18 Luton 34 6 7 21 47 75 -28 25
19 Burnley 34 5 8 21 37 69 -32 23
20 Sheffield Utd 33 3 7 23 31 88 -57 16
Athugasemdir
banner
banner