Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 28. desember 2019 12:54
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Miklar tilfinningar þegar Jahanbakhsh fagnaði fyrsta marki sínu
Mynd: Getty Images
Mynd: Getty Images
Alireza Jahanbakhsh, leikmaður Brighton, skoraði fyrsta mark sitt fyrir Brighton á þriðju mínútu leiks Brighton og Bournemouth sem nú er í gangi. Íraninn gekk í raðir Brighton fyrir síðustu leiktíð en hafði til þessa ekki náð að skora mark fyrir Brighton.

Neal Maupay lagði boltann út á Jahanbakhsh sem þrumaði knettinum framhjá Aaron Ramsdale í marki Bournemouth.

Staðan er 1-0 fyrir Brighton eftir um 25 mínútna leik. Markið má sjá með því að smella hér.

Tilfinningarnar voru miklar í kjölfar marksins eins og sjá má hér að neðan. Markið þýðir augljóslega mikið fyrir Íranann.






Athugasemdir
banner
banner
banner