Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 28. desember 2019 22:05
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Moyes að taka aftur við West Ham
Moyes er að mæta aftur.
Moyes er að mæta aftur.
Mynd: Getty Images
David Moyes verður næsti stjóri West Ham að sögn Sky Sports.

Manuel Pellegrini var rekinn frá West Ham fyrr í kvöld eftir 2-1 tap gegn Leicester í ensku úrvalsdeildinni.

Telegraph fjallaði um það í gær að Moyes væri líklegastur til að taka við West Ham yrði Pellegrini rekinn. Nú tekur Sky Sports undir það að Skotinn verði næsti stjóri félagsins.

Það yrði þá í annað sinn sem Moyes tekur við West Ham. Hann tók við af Slaven Bilic fyrir tveimur árum og hjálpaði liðinu þá að forðast fall. Hann fékk ekki að halda áfram með liðið eftir það tímabil og hefur ekki verið í starfi síðan þá.

Moyes var orðaður við Everton áður en Carlo Ancelotti var ráðinn þangað.

Næsti leikur West Ham er gegn Bournemouth á nýársdag. Eftir tapið gegn Leicester er West Ham í 17. sæti, einu stigi frá fallsæti.
Athugasemdir
banner
banner
banner