Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 28. desember 2019 14:14
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Mynd: Grínast með að hár á hendi hafi verið fyrir innan hjá Dan Burn
Mynd: Getty Images
Brighton leiðir þessa stundina 2-0 gegn Bournemouth í ensku úrvalsdeildinni. Íraninn Alireza Jahnbakhsh kom Brighton yfir snemma leiks og Aaron Mooy skoraði seinna mark liðsins í seinni hálfleik.

Um miðjan seinni hálfleikinn virtist Dan Burn skora löglegt mark og koma þá Brighton í 2-0. Löglega mark Aaron Mooy kom eftir þetta atvik.

Markið var dæmt gott og gilt á vellinum en var eins og öll önnur mörk skoðuð með VAR tækninni. Sú tækni dæmdi markið ólöglegt vegna ragnstöðu í aðdragandanum.

Mynd af því atviki má sjá hér að neðan og í texta sem fylgir myndinni er grínast með að hár á hendi Burn hafi verið fyrir innan, svo tæpt er þetta.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner