Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   lau 28. desember 2019 12:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Ronaldo vill leika í kvikmynd eftir að ferlinum lýkur
Mynd: Getty Images
Cristiano Ronaldo er 34 ára gamall. Hann er ekki kominn á endastöð á knattspyrnuferli sínum.

Ronaldo segist jafnvel geta spilað til fertugs en hann muni hlusta á líkama sinn þegar kemur að því að leggja skóna á hilluna.

„Fyrir einhverjum árum þá voru menn að hætta 30-32 ára. Núna geta menn spilað til fertugs," byrjaði Ronaldo í viðtali.

„Þegar líkami minn hættir að svara mér með réttum hætti þá er kominn tími til að hætta. Mig langar að prófa eitthvað annað þegar ferlinum lýkur."

„Eitt af því sem ég vil láta reyna á er að leika í kvimynd. Ég mæli með því við alla að prófa eitthvað nýtt, læra hluti sem tengjast einhverju sem þú hefur ekki prófað áður. Þetta hefur hjálpað mér að komast á þann stað sem ég er á í dag,"
sagði Ronaldo um komandi áskoranir.
Athugasemdir
banner
banner