Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 28. desember 2019 21:32
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Sara í þriðja sæti - Glódís í áttunda og Gylfi í tíunda
Glódís var í áttunda sæti.
Glódís var í áttunda sæti.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Gylfi í tíunda sæti.
Gylfi í tíunda sæti.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Grótta var í fjórða sæti í valinu á liði ársins.
Grótta var í fjórða sæti í valinu á liði ársins.
Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson
Rúnar gerði KR að Íslandsmeisturum. Hann var í sjöunda sæti í vali á þjálfara ársins.
Rúnar gerði KR að Íslandsmeisturum. Hann var í sjöunda sæti í vali á þjálfara ársins.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sara Björk Gunnarsdóttir, landsliðsfyrirliði kvenna, endaði í þriðja sæti í valinu á íþróttamanni ársins 2019.

Glódís Perla Viggósdóttir, félagi hennar í kvennalandsliðinu, endaði í áttunda sæti og var Gylfi Þór Sigurðsson, leikmaður Everton á Englandi, í tíunda sæti.

Ragnar Sigurðsson, Kolbeinn Sigþórsson, Jóhann Berg Guðmundsson, Elín Metta Jensen og Margrét Lára Viðarsdóttir fengu einnig atkvæði í kjörinu.

Það eru samtök íþróttafréttamanna sem kjósa til verðlaunanna.

Íþróttamaður ársins:
1. Júlían J. K Jóhannsson, kraftlyftingar – 378
2. Martin Hermannsson, körfubolti – 335
3. Sara Björk Gunnarsdóttir, fótbolti – 289
4. Anton Sveinn McKee, sund – 244
5. Arnar Davíð Jónsson, keila – 218
6. Aron Pálmarsson, handbolti – 158
7. Guðbjörg Jóna Bjarnadóttir, frjálsíþróttir – 98
8. Glódís Perla Viggósdóttir, fótbolti – 61
9. Guðmundur Ágúst Kristjánsson, golf – 55
10. Gylfi Þór Sigurðsson, fótbolti – 53

11. Már Gunnarsson, íþróttir fatlaðra – 30
12. Jóhann Skúlason, hestaíþróttir – 29
13. Helena Sverrisdóttir, körfubolti – 22
14. Ragnar Sigurðsson, fótbolti – 17
15. Haraldur Franklín Magnús, golf – 15
16. Arnór Þór Gunnarsson, handbolti – 13
17-18. Íris Björk Símonardóttir, handbolti – 6
17-18. Jón Axel Guðmundsson, körfubolti – 6
19-20. Kolbeinn Sigþórsson, fótbolti – 5
19-20. Jóhann Berg Guðmundsson, fótbolti – 5
21. Guðlaug Edda Hannesdóttir, þríþraut – 3
22. Elín Metta Jensen, fótbolti – 2
23-24. Guðjón Valur Sigurðsson, handbolti – 1
23-24. Margrét Lára Viðarsdóttir, fótbolti – 1

Kvennalið Vals í körfubolta var valið lið ársins eftir harða baráttu við kvennalið Vals í handbolta.

Karlalið Gróttu í fótbolta var í fjórða sæti í valinu. Kvennalið Selfoss var í sjötta sæti, karlalandslið Íslands í sjöunda sæti, kvennalandsliðið í 9-10. sæti og karlalið KR í 11. sæti.

Lið ársins:
1. Kvennalið Vals í körfubolta – 58
2. Kvennalið Vals í handbolta – 58
3. Karlalið Selfoss í handbolta – 57

4. Karlalið Gróttu í fótbolta – 36
5. Karlalið KR í körfubolta – 20
6. Kvennalið Selfoss í fótbolta – 6
7. Karlalandslið Íslands í fótbolta – 5
8. Landslið Íslands í frjálsum íþróttum – 4
9-10. Kvennalið Stjörnunnar í hópfimleikum – 3
9-10. Kvennalandslið Íslands í fótbolta – 3
11. Karlalið KR í fótbolta – 2

Óskar Hrafn Þorvaldsson var valinn þjálfari ársins 2019 vegna árangur síns með Gróttu. Hann hafði betur gegn handboltaþjálfurunum Alfreð Gíslasyni og Patreki Jóhannessyni.

Rúnar Kristinsson, þjálfari karlaliðs KR, var í sjöunda sæti, Arnar Gunnlaugsson, þjálfari karlaliðs Víkings R., var í níunda sæti og Alfreð Elías Jóhannsson, þjálfari kvennaliðs Selfoss, í 10-11. sæti.

Þjálfari ársins:
1. Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari karlaliðs Gróttu í fótbolta – 53
2. Alfreð Gíslason, þjálfari Kiel í handbolta – 48
3. Patrekur Jóhannesson, þjálfari Selfoss í handbolta – 37

4. Vésteinn Hafsteinsson, kastþjálfari í frjálsum íþróttum – 32
5.-6. Ágúst Jóhannsson, þjálfari kvennaliðs Vals í handbolta – 23
5.-6. Darri Freyr Atlason, þjálfari kvennaliðs Vals í körfubolta – 23
7. Rúnar Kristinsson, þjálfari karlaliðs KR í körfubolta – 21
8. Þórir Hergeirsson, þjálfari norska kvennalandsliðsins í handbolta – 11
9. Arnar Gunnlaugsson, þjálfari karlaliðs Víkings í fótbolta – 2
10.-11. Aron Kristjánsson, þjálfari karlalandsliðs Barein í handbolta – 1
10.-11. Alfreð Elías Jóhannsson, þjálfari kvennaliðs Selfoss í fótbolta – 1

Sjá einnig:
Óskar Hrafn er þjálfari ársins
Sara Björk á meðal þriggja efstu í valinu á íþróttamanni ársins
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner