Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 28. desember 2019 17:15
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Vardy ekki í hóp þar sem hann var að eignast barn
Vardy og Rebekah voru að eignast barn.
Vardy og Rebekah voru að eignast barn.
Mynd: Getty Images
Jamie Vardy, markahæsti leikmaður ensku úrvalsdeildarinnar er ekki í leikmannahópi Leicester gegn West Ham í dag þar sem eiginkona hans, Rebekah, var að eignast stúlkubarn.

„Eiginkona Jamie Vardy var að eignast barn í dag og hann er því með henni. Hamingjuóskir til þeirra," sagði Brendan Rodgers, stjóri Leicester.

Leicester heimsækir West Ham, en liðið hefur núna tapað tveimur leikjum í röð - gegn Manchester City og Liverpool.

Vardy hefur farið á kostum á tímabilinu og skorað 17 mörk í 18 deildarleikjum. Leicester mun því eflaust sakna hans.

Smelltu hér til að sjá byrjunarliðin í leikjunum sem hefjast klukkan 17:30.


Athugasemdir
banner
banner