Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 28. desember 2020 13:45
Magnús Már Einarsson
Diego Costa óskar eftir riftun hjá Atletico Madrid
Mynd: Getty Images
Diego Costa hefur óskað eftir að samning sínum við Atletico Madrid verði rift en Goal.com segir frá þessu í dag.

Costa hefur átt erfitt uppdráttar síðan hann kom aftur til Atletico Madrid frá Chelsea árið 2018.

Meiðsli hafa sett strik í reikninginn og Costa hefur lítið spilað.

Costa hefur á þessu tímabili skorað tvö mörk í sjö leikjum með toppliði Atletico Madrid.

Þessi 32 ára gamli framherji vonast nú til að losna undan samningi til að geta fundið nýtt félag í janúar.
Athugasemdir
banner
banner
banner