Chelsea 1 - 1 Aston Villa
1-0 Olivier Giroud ('34 )
1-1 Anwar El Ghazi ('50 )
1-0 Olivier Giroud ('34 )
1-1 Anwar El Ghazi ('50 )
Aston Villa krækti í stig gegn Chelsea á Stamford Bridge í dag.
Olivier Giroud kom Chelsea yfir á 34. mínútu með skalla eftir fyrirgjöf Ben Chillwell. Chillwell var nálægt því að vera rangstæður í aðdragandanum en hann var réttstæður þegar lína var teiknuð í VAR þegar markið var skoðað.
Anwar El Ghazi jafnaði metin fyrir Aston Villa snemma í seinni hálfleik. Anders Christensen lá á vellinum en ekkert athugavert sást þegar markið var skoðað.
Stig á hvort liðið og slæmt gengi Chelsea heldur áfram. Liðið hefur einungis unnið einn af síðustu fimm deildarleikjum en á sama tíma er Aston Villa taplaust í síðustu fimm leikjum. Villa er í 5. sæti og Chelsea í því sjötta, Villa á tvo leiki til góða.
Athugasemdir