mán 28. desember 2020 16:24
Magnús Már Einarsson
Leik Everton og Manchester City frestað
Búið er að loka æfingasvæði Manchester City.
Búið er að loka æfingasvæði Manchester City.
Mynd: Getty Images
Búið er að fresta leik Everton og Manchester City í ensku úrvalsdeildinni en liðin áttu að mætast í kvöld.

Kórónuveirusmit kom upp hjá Manchester City um helgina en þá var greint frá því að Gabriel Jesus og Kyle Walker hafi smitast sem og tveir starfsmenn félagsins.

Fleiri hjá félaginu greindust smitaðir í dag og æfingasvæði Manchester City hefur verið lokað til að minnka frekari smithættu.

Líklegt er að leik Manchester City og Chelsea verði einnig frestað en þau eiga að mætast næstkomandi sunnudag.

Þá er óvíst hvað verður um leik Manchester City og Manchester United í undanúrslitum enska deildabikarsins í næstu viku.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner