Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mán 28. desember 2020 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Nainggolan vill snúa aftur til Cagliari
Mynd: Getty Images
Belgíski miðjumaðurinn Radja Nainggolan er eftirsóttur af félögum á Ítalíu að sögn La Gazzetta dello Sport.

Hinn 32 ára gamli Nainggolan er aðeins búinn að spila 45 mínútur á leiktíðinni og má yfirgefa Inter.

Fiorentina og Sassuolo með hann á óskalista sínum fyrir janúargluggann, en Nainggolan vill sjálfur fara aftur til Cagliari í þriðja sinn á ferlinum.

Nainggolan var hjá Cagliari á láni á síðustu leiktíð og spilaði þá 29 leiki í öllum keppnum.

Piero Ausilio, yfirmaður íþróttamála hjá Inter, segir að félagið sé að bíða eftir rétta tilboðinu fyrir Nainggolan sem er samningsbundinn Inter til 2022.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner