Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 28. desember 2020 19:39
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Tomkins: Get vonandi endurgoldið Guaita greiðann einn daginn
Vítið varið
Vítið varið
Mynd: Getty Images
„Við vorum slakir í fyrri hálfleik, stressaðir eftir nokkra erfiða leiki. Ray Lewington lét okkur heyra það í hálfleik og við sönnuðum að við erum betri en við sýndum í fyrri hálfleik. Þetta var frábært svar í seinni hálfleiknum," sagði James Tomkins, miðvörður Crystal Palace, í viðtali eftir 1-1 jafntefi gegn Leicester í dag.

„Það kom aukalíf í þeirra leik þegar Jamie Vardy kom inn á. Ég var að spila minn fyrsta leik í tíu mánuði og það lífgaði upp á fríska framlínu þeirra. Markið þeirra kom eftir sérstakt framtak, svona gera góðir leikmenn."

Tomkins gerðist brotlegur í fyrri hálfleik innan eigin vítateigs, vítaspyrna var dæmd og Kelechi Iheanacho steig á vítapunktinn. Vicente Guaita kom Palace og Tomkins til bjargar með því að verja spyrnuna.

„Guaita er góður markvörður, hann hefur verið frábær síðan hann kom til félagsins og bjargði mér í dag. Vonandi get ég endurgoldið honum greiðann einn daginn."

Wilfried Zaha skoraði mark Crystal Palace með skoti eftir fyrirgjöf.

„Zaha gerir þetta mjög oft, hann er leikmaður sem stendur upp úr. Það er gaman að spila með honum og vonandi getur hann haldið áfram að gera svona hluti fyrir okkur," sagði Tomkins að lokum.
Athugasemdir
banner
banner
banner