mán 28. desember 2020 09:00
Magnús Már Einarsson
Wijnaldum biður Liverpool um lengri frest
Mynd: Getty Images
Gini Wijnaldum, miðjumaður Liverpool, hefur beðið félagið um að fá nokkra daga í viðbót til umhugsunar áður en hann svarar samningstilboði félagsins.

Hollendingurinn verður samningslaus næsta sumar en Liverpool bauð honum nýjan samning á dögunum.

Hinn þrítugi Wijnaldum er ennþá að hugsa málið og hefur að sögn The Guardian beðið um lengri frest til að svara.

Wijnaldum hefur þó lofað Liverpool að hann muni láta félagið vita áður en hann byrjar viðræður við önnur félög.

Wijnaldum má byrja að ræða við önnur félög á föstudaginn, en þá eru sex mánuðir eftir af samningi hans.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner