Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
   mið 29. janúar 2020 19:42
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Man Utd að fá markvörð frá Campbell og Hermanni
Nathan Bishop.
Nathan Bishop.
Mynd: Getty Images
Manchester United er að fá markvörðinn Nathan Bishop frá Southend United. BBC og aðrir breskir fjölmiðlar segja frá þessu.

Sol Campbell og Hermann Hreiðarsson stýra Southend United sem er í C-deild á Englandi.

Hinn tvítugi Bishop hefur leikið 17 leiki með aðalliði Southend á þessari leiktíð.

Campbell sagði eftir 3-1 tap gegn Doncaster í gær að Bishop væri í læknisskoðun hjá öðru félagi, en hann gat ekki sagt til um hvaða félag það væri. Það er víst Manchester United.

Hann mun fara í U23 lið Manchester United.

Man Utd mun því væntanlega fá tvo leikmenn inn áður en glugginn lokar á föstudag. Bruno Fernandes er einnig á leiðinni, en hann kemur frá Sporting Lissabon.
Athugasemdir
banner
banner
banner