Aðallið Liverpool er 1-0 yfir gegn West Ham í leik sem er í gangi í ensku úrvalsdeildinni. Ungstirnið Harvey Elliott er ekk með aðalliðinu í kvöld, hann er að spila með U23 liðinu gegn Úlfunum.
Leikur Liverpool U23 gegn Úlfunum endaði 2-2 og jafnaði Elliott snemma í síðari hálfleik með mögnuðu marki eftir hornspyrnu. Markið má sjá neðst í fréttinni, afar vel gert.
Elliott er 16 ára gamall vængmaður sem var fenginn til Liverpool frá Fulham síðasta sumar.
Hann varð á síðustu leiktíð yngsti leikmaðurinn í sögunni til að spila í ensku úrvalsdeildinni.
Hann hefur á þessari leiktíð komið við sögu í sex leikjum með aðalliði Liverpool, þar af einum í ensku úrvalsdeildinni.
Hér að neðan má sjá markið.
— Gareth Roberts (@robbohuyton) January 29, 2020
Athugasemdir