Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mið 29. janúar 2020 21:27
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Þýskaland: Guðlaugur Victor lék allan leikinn en Rúrik var ekki í hóp
Guðlaugur Victor Pálsson.
Guðlaugur Victor Pálsson.
Mynd: Getty Images
Darmstadt hóf aftur leik í þýsku B-deildinni í kvöld eftir vetrarfrí. Guðlaugur Victor Pálsson var í byrjunarliði Darmstadt og spilaði allan leikinn gegn Holstein Kiel á útivelli.

Holstein Kiel komst yfir eftir um hálftíma leik, en fyrir leikhlé jafnaði Serdar Dursun fyrir Darmstadt.

Holstein Kiel var sterkari aðilinn, en Guðlaugur Victor og félagar voru þéttir fyrir og náðu að halda út. Lokatölur voru 1-1.

Hitt Íslendingalið deildarinnar, Sandhausen, vann 3-1 sigur gegn Osnabruck á útivelli. Osnabruck var manni færri frá 45. mínútu eftir að leikmaður liðsins fékk sitt annað gula spjald.

Staðan var 1-0 þegar hann fór út af, en Sandhausen nýtti sér liðsmuninn og sneri leiknum við.

Rúrik Gíslason var ekki í leikmannahópi Sandhausen í kvöld.

Darmstadt er í 11. sæti og Sandhausen í áttunda sæti.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner