Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   sun 29. janúar 2023 22:54
Ívan Guðjón Baldursson
Arsenal með 70 milljón punda tilboð í Caicedo
Mynd: EPA

Arsenal er búið að leggja fram annað tilboð í ekvadorska miðjumanninn Moises Caicedo, sem hefur farið fram á sölu frá Brighton.


Sky Sports greinir frá þessu og segir að heildarupphæðin nemi 70 milljónum punda með öllum aukagreiðslum.

Sky greinir þó einnig frá því að Brighton vilji ekki selja leikmanninn þrátt fyrir færslu hans á Instagram.

Ekki er ljóst hversu mikinn pening Brighton vill fá fyrir Caicedo en sú upphæð er líklega nær 100 milljónum punda.

Caicedo er 21 árs gamall og gekk í raðir Brighton fyrir tveimur árum síðan. Þá kostaði hann ekki nema tæpar 5 milljónir punda.


Athugasemdir
banner
banner