Hinn ungi og efnilegi Harvey Elliott kom Liverpool í forystu gegn Brighton í enska bikarnum en þegar þetta er skrifað er staðan 1-1.
Á 30. mínútu skoraði Elliott eftir góða sendingu fráMohamed Salah en rétt undir lok fyrri hálfleiksins átti Tariq Lamptey þrumuskot sem fór í Lewis Dunk og þaðan í netið.
Leikmenn Brighton voru ósáttir með að markið hjá Liverpool fékk að standa en VAR skoðaði atvikið en sá ekkert áhugavert.
Þeir vildu meina að boltinn hafi farið í höndina á Naby Keita í aðdragandanum en dæmir hver fyrir sig.
Smelltu hérna til þess að sjá markið hjá Elliott.
Jöfnunarmarkið hjá stóra Lewis Dunk má síðan sjá hér.
Athugasemdir