Ademola Lookman, leikmaður Atalanta á Ítalíu, hefur komið mörgum á óvart með spilamennsku sinni á þessari leiktíð en hann hefur verið að fara á kostum upp á síðkastið.
Atalanta er sem stendur í fjórða sæti deildarinnar og hefur Lookman verið algjör lykilmaður hjá liðinu.
Þessi 25 ára gamli leikmaður skoraði fallegt mark í gær í sigri á Sampdoria og hefur hann nú gert 14 mörk í 20 leikjum á Ítalíu.
Til samanburðar þá skoraði hann einungis tólf mörk samtals á sínum tíma með Leicester City, Fulham, RB Leipzig og Everton.
„Já! Ég bjóst við þessu. Kannski kemur þetta ykkur á óvart en ekki mér. Ég veit hvað ég get gert en liðið er mikilvægasti hluturinn í þessu,” sagði Lookman.
„Ég er á rétta staðnum, á rétta augnablikinu að gera réttu hlutina.”
Lookman er kominn með fimm mörk í þessum mánuði en það er meira heldur en menn á borð við Victor Osimhen, Erling Haaland og Lautaro Martinez.