Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 29. janúar 2023 10:00
Ívan Guðjón Baldursson
Myndband: Eriksen á hækjum eftir tæklingu Andy Carroll
Mynd: Getty Images

Christian Eriksen var í byrjunarliði Manchester United í 3-1 sigri gegn Reading í gærkvöldi.


Man Utd komst þannig áfram í næstu umferð enska bikarsins en danski miðjumaðurinn Christian Eriksen þurfti að fara meiddur af velli eftir 57 mínútur þegar Andy Carroll tæklaði hann harkalega.

Darren England dæmi aukaspyrnu á brotið en sóknarmaðurinn hávaxni slapp óskiljanlega við spjald. Nokkrum mínútum síðar fékk hann þó gult spjald fyrir annað brot og var svo sendur í sturtu skömmu þar á eftir með seinna gula spjaldið.

Óljóst er hversu alvarleg meiðslin eru en þetta gæti orðið mikill skellur fyrir Rauðu djöflana í ljósi þess að Eriksen er mikilvægur hlekkur í byrjunarliðinu.


Athugasemdir
banner
banner
banner