banner
   sun 29. janúar 2023 13:15
Aksentije Milisic
„Sjáum það í hverri viku að Casemiro er leikmaður í hæsta gæðaflokki"
Mynd: Getty Images

Roy Keane, sérfræðingur á Sky Sports og fyrrverandi fyrirliði Manchester United, hrósaði Casemiro í hástert en Brassinn gerði tvennu í gær þegar Manchester United vann Reading í enska bikarnum.


Casemiro hefur verið frábær síðan hann kom til Manchester United í byrjun þessarar leiktíðar en United hefur lengið vantað leikmann eins og hann á miðjuna.

Þegar honum var skipt útaf í gær stóðu allir upp á Old Trafford og klöppuðu fyrir Casemiro. Ekki nóg með að hann sé að sinna varnarvinnunni upp á tíu þá er hann líka að skora og leggja upp mörk.

„Hann hefur verið risa kaup fyrir Man Utd. Á síðustu árum hefur Man Utd vantaði meiri gæði á miðsvæðinu. Þeim hefur vantað topp leikmann með stóran persónuleika og mikla nærveru," sagði Keane.

„Hann er leikmaður í hæsta gæðaflokki. Við sjáum það í hverri viku. Hann hefur áhrif á leikinn."

Eins og áður segir þá hefur Casemiro verið að skila inn mörkum og stoðsendingum í treyju Man Utd.

„Hann hefur verið djúpur miðjumaður vegna leikmannanna sem hann hefur verið að spila með hjá Real. Þeir eru sókndjarfari. Síðustu mánuði erum við að sjá að hann er einnig öflugur sóknarlega."


Athugasemdir
banner
banner
banner