Newcastle United borgar um 45 milljónir punda fyrir kantmanninn efnilega Anthony Gordon.
Gordon, sem verður 22 ára í febrúar, gengur þar til liðs við nokkra samlanda sína, meðal annars Callum Wilson og Kieran Trippier.
Wilson og Trippier buðu nýja liðsfélaga sinn velkominn með skemmtilegum færslum á Instagram. Wilson nýtti 'Story' aðferðina þar sem hann birti þrjú skjáskot af átökum milli leikmanna Newcastle og Anthony Gordon í leik gegn Everton.
Búið var að skrifa inn á myndirnar „ef þú getur ekki sigrað þá, gakktu þá til liðs við þá," til að skjóta vinalega á Gordon.
Trippier fór svipaða leið nema að í staðinn fyrir að nýta 'Story' hjá sér birti hann heila færslu tileinkaða nýja leikmanninum. Færslan er stutt myndbandsklippa af átökum á milli Gordon og Trippier innan vallar og við hliðina skrifar Trippier „Velkominn bróðir."