Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
   lau 29. febrúar 2020 15:07
Ívan Guðjón Baldursson
Neyðarlán Patriks framlengt um eina viku
Mynd: Brentford
Markvörðurinn Patrik Sigurður Gunnarsson var fenginn til enska C-deildarliðsins Southend United á neyðarláni í síðustu viku.

Patrik spilaði í 2-3 tapi um síðustu helgi og er á milli stanganna í dag gegn Oxford United.

Lánssamningurinn gilti aðeins í eina viku og er Southend búið að framlengja hann um aðra viku. Patrik verður því til taks fram að næsta leik gegn Bristol Rovers, sem fer fram 7. mars.

Southend er svo gott sem fallið úr C-deildinni ásamt Bolton. Patrik er samningsbundinn Brentford sem leikur í næstu deild fyrir ofan, Championship deildinni.
Athugasemdir
banner
banner
banner