Astana 1 - 0 Kaisar Kyzylorda
1-0 Pieros Sotiriou ('40 )
1-0 Pieros Sotiriou ('40 )
Astana (deildarmeistarar) mætti í dag Kaisar (bikarmeistarar) í leik hvort liðið yrði meistari meistaranna í Kasakstan. Rúnar Már Sigurjónsson er leikmaður Astana og lék allan leikinn í dag.
Pieros Sotiriou skoraði eina mark leiksins en hann gekk í raðir Astana frá FC Kaupmannahöfn fyrr í þessum mánuði.
Leikið var innanhús samkvæmt Flashscore. Rúnar Már verður væntanlega í landsliðshópnum þegar Ísland mætir Rúmeníu í undanúrslitum umspilsins um sæti á EM2020 eftir tæpar fjórar vikur.
Первый гол Пиероса Сотириу за «Астану»💪💪💪 pic.twitter.com/TlORug6kVL
— FC Astana (@fc_astana) February 29, 2020
Athugasemdir