Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 29. febrúar 2020 12:43
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Segir Arteta þurfa að losa níu leikmenn
Mynd: Getty Images
Mikel Arteta, stjóri Arsenal, hefur fengið þau skilaboð að hann þurfi að taka vel til hjá félaginu í komandi félagsskiptaglugga. Perry Groves, fyrrum leikmaður Arsenal, vill sjá Arteta losa níu leikmnenn frá félaginu.

Groves segir það ekki auðvelt að losa nánast heilt lið í einum rikk en segir Arteta þurfa að hreinsa til.

„Hann þarf að losa sig við leikmenn," sagði Groves við talkSPORT.

„Ég hélt það yrðu fimm eða sex en ég held þetta endi í níu leikmönnum. Það er ekki hægt að gera það strax í sumar. Þetta snýst ekki bara um hæfileika, þessir leikmenn eru ekki lélegir."

„David Luiz, Mustafi, Sokratis, Ceballos (á láni hjá Arsenal), Özil, Xhaka, Chambers, Elneny og Henrikh Mkhitaryan eru þeir leikmenn sem ég tel þurfa að fara."
(Síðustu tveir eru á láni frá Arsenal þessa stundina)

„Einhverjir þarna hafa hlutverk þessa stundina en þeir til langs tíma litið verða þeir að fara," sagði Groves að lokum.
Athugasemdir
banner
banner