Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fim 29. apríl 2021 16:27
Elvar Geir Magnússon
Aston Villa gæti reynt að fá Abraham í sumar
Tammy Abraham er samningsbundinn Chelsea til 2023.
Tammy Abraham er samningsbundinn Chelsea til 2023.
Mynd: Getty Images
Aston Villa gæti gert tilboð í Tammy Abraham, sóknarmann Chelsea, í sumar. Abraham skoraði 26 mörk fyrir Villa þegar hann var lánaður til félagsins 2018-19 en liðið komst þá upp í ensku úrvalsdeildina.

Hann á sér marga aðdáendur innan Villa og félagið reyndi að kaupa hann alfarið þegar félagið komst upp en Chelsea var þá ekki tilbúið að selja.

Nú er sagt að Chelsea sé tilbúið að selja þennan 23 ára leikmann á um 40 milljónir punda.

Abraham hefur færst aftar í goggunarröðina á Brúnni eftir að Thomas Tuchel tók við stjórnartaumunum. Hann hefur aðeins byrjað fjóra leiki undir stjórn Þjóðverjans.
Athugasemdir
banner
banner