Esbjerg 1 - 0 Koge
1-0 Pyry Soiri ('56)
1-0 Pyry Soiri ('56)
Íslandsvinurinn Pyry Soiri gerði eina mark leiksins er Esbjerg lagði Koge að velli í dönsku toppbaráttunni.
Kjartan Henry Finnbogason var í byrjunarliði Esbjerg, sem spilar undir stjórn Ólafs Helga Kristjánssonar fyrrum þjálfara FH og Nordsjælland.
Esbjerg er í þriðja sæti en aðeins tvö lið komast upp í efstu deild. Esbjerg er fjórum stigum frá Silkeborg í öðru sæti en Silkeborg á leik til góða.
Esbjerg á aðeins eftir að spila fimm leiki á tímabilinu.
Athugasemdir