Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 29. apríl 2021 15:39
Elvar Geir Magnússon
ÍBV að fá Stefán Inga lánaðan frá Breiðabliki
Stefán Ingi Sigurðarson.
Stefán Ingi Sigurðarson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
ÍBV er að fá sóknarmanninn Stefán Inga Sigurðarson lánaðan frá Breiðabliki samkvæmt heimildum Fótbolta.net.

Eyjamenn misstu sóknarmann í gær þegar samningi Gary Martin var rift í kjölfarið af agabroti.

Stefán er tvítugur en í fyrra var hann lánaður til Grindavíkur þar sem hann skoraði þrjú mörk í sex leikjum í Lengjudeildinni.

Stefán var á leið aftur á lán til Grindvíkinga þegar málin tóku nýja stefnu og mun hann leika með ÍBV í sumar.

Hann mun þó ekki klára tímabilið því hann er í námi í Bandaríkjunum og heldur aftur út um mitt sumar.

Eyjamenn höfnuðu í sjötta sæti Lengjudeildarinnar í fyrra en stefna á að komast upp í sumar.


Athugasemdir
banner
banner
banner