Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 29. apríl 2021 14:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Rodrigo orðinn heill - Bielsa tekur ákvörðun eftir leiktíðina
Rodrigo Moreno
Rodrigo Moreno
Mynd: Getty Images
Leeds mætir Brighton á Amex vellinum á laugardag í ensku úrvalsdeildinni.

Leeds mun endurheimta Rodrigo í liðið en verður áfram án Raphinha vegna meiðsla. Þetta staðfesti Marcelo Bielsa, stjóri Leeds, á blaðamannafundi í dag.

Rodrigo hafði glímt við vöðvameiðsl en Raphina glímir áfram við nárameiðsli.

Varnarmaðurinn Liam Cooper tekur þá út lokaleik sinn í þriggja leikja banni en hann fékk að líta rauða spjaldið gegn Manchester City fyrr í mánuðinum.

Bielsa var spurður út í sína stöðu upp á framtíðina að gera. Eigandi Leeds vill framlengja samninginn við Bielsa en stjórinn ætlar að bíða þar til eftir leiktíðina. Samningur Bielsa rennur út í sumar.
Athugasemdir
banner
banner
banner