Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 29. apríl 2021 22:09
Ívan Guðjón Baldursson
Sjáðu atvikið: Átti Arsenal að fá vítaspyrnu?
Mynd: EPA
Unai Emery, fyrrum stjóri Arsenal og núverandi þjálfari Villarreal, telur að Arsenal hafi ekki átt skilið að fá vítaspyrnu í síðari hálfleik er liðin mættust í undanúrslitum Evrópudeildarinnar fyrr í kvöld.

Villarreal leiddi 2-0 í leikhlé en Arsenal minnkaði muninn og skoraði mikilvægt útivallarmark í síðari hálfleik.

„Við fengum færi til að gera þriðja markið, það var planið okkar. Þessi vítaspyrna átti aldrei að vera dæmd, við áttum skilið að sigra," sagði Emery að leikslokum.

„Við munum mæta í seinni leikinn með sama leikplan. Við ætlum að stjórna leiknum og sýna karakterinn okkar."

Sjáðu atvikið

Athugasemdir
banner
banner