Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fim 29. apríl 2021 20:51
Ívan Guðjón Baldursson
Sjáðu atvikið: Ceballos rekinn útaf
Mynd: Getty Images
Dani Ceballos var rekinn af velli snemma í síðari hálfleik í undanúrslitaleik Evrópudeildarinnar í kvöld þar sem Arsenal er undir gegn Villarreal á lokakaflanum.

Villarreal komst tveimur mörkum yfir í fyrri hálfleik og fékk Ceballos gult spjald. Í síðari hálfleik missti Ceballos knöttinn aðeins of langt frá sér og traðkaði óvart á varnarmanni Villarreal í kjölfarið.

Dómarinn gat ekki annað gert en að reka Spánverjann knáa af velli þó það hafi verið hálftími eftir af leiknum.

Lærisveinar Mikel Arteta gáfust þó ekki upp og náði Nicolas Pepe að minnka muninn með marki úr vítaspyrnu og skömmu síðar fékk leikmaður Villarreal sitt annað gula spjald.

Nú er komið í uppbótartíma en tíu leikmönnum Arsenal hefur ekki tekist að jafna gegn tíu heimamönnum. Þeir eru þó komnir með mikilvægt útivallarmark.

Sjáðu atvikið
Athugasemdir
banner
banner
banner