Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 29. apríl 2021 18:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Sjáðu mörkin: Rúnar skoraði bæði í sigri Cluj - „Hakan í gólfið"
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Rúnar Már Sigurjónsson skoraði í gær bæði mörk Cluj í 2-0 sigur í rúmensku deildinni.

Þetta voru mörk númer tvö og þrjú hjá Rúnari í deildinni í vetur en um síðustu helgi varð hann fyrsti Íslendingurinn til að skora í deildinni.

Cluj vann Botosani á heimavelli í gær og er í efsta sæti efri-hluta umspilsins sem stendur. FCSB er tveimur stigum á eftir en á leik til góða.

Mörk Rúnars komu á 25. og 28. mínútu leiksins, þau má sjá hér að neðan. Rúnar er þrítugur miðjumaður og gekk í raðir Cluj frá Astana í vetrarglugganum.



Athugasemdir
banner
banner
banner