Það fer fram einn leikur í spænsku úrvalsdeildinni í dag og er mikilvægi hans mikið.
Barcelona tekur á móti Granada og verður flautað til leiks klukkan 17:00. Leikurinn verður sýndur í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport 4.
Mikilvægi leiksins er mikið þar sem Barcelona getur komist á toppinn með sigri. Barcelona getur komist upp fyrir Real Madrid og Atletico, með einu stigi meira en þau þegar fimm umferðir eru eftir.
Granada er í áttunda sæti og þetta verður ekki auðveldur leikur fyrir Lionel Messi og félaga. Spennan á toppnum er gríðarlega mikil.
fimmtudagur 29. apríl
Spánn: La Liga
17:00 Barcelona - Granada CF (Stöð 2 Sport 4)
Athugasemdir