Jökull Andrésson hefur verið algjörlega frábær fyrir Exeter City í ensku D-deildinni á tímabilinu.
Jökull, sem er aðeins 19 ára, er á láni hjá Exeter frá Reading. Með því að smella hérna er hægt að lesa ítarlegt viðtal við Jökul um lífið í Englandi og margt fleira.
Jökull er staðráðinn í að hjálpa Exeter í baráttunni um að komast upp um deild en liðið er í harðri baráttu um að komast í umspil.
Exeter vann mikilvægan 3-2 sigur á Grimsby í deildinni á þriðjudagskvöld. Exeter skoraði tvö mörk á síðustu tíu mínútum leiksins eftir að hafa verið 2-1 undir. Sigurmarkið kom á 89. mínútu og Exeter er tveimur stigum frá umspilinu þegar tveir leikir eru eftir.
Jökull fagnaði sigurmarkinu vel en Exeter birti myndband á samfélagsmiðlum sínum þess efnis. „Við höldum að Jökull hafi skemmt sér vel þegar sigurmarkið kom."
Hægt er að sjá myndbandið hér að neðan. Það er alveg ljóst að Jökull er mjög vinsæll hjá Exeter, ef miða má við ummæli á samfélagsmiðlum.
🤩 We think @JokullAndresson might have enjoyed @ryan_bowman12's winner last night...#ECFC #OneGrecianGoal pic.twitter.com/6tTza1LbEd
— Exeter City (@OfficialECFC) April 28, 2021
Struggling to think of a loanee who has embraced the club, and been embraced by it, as Jokull has.
— Niall Duffy (@NiallTDuffy) April 28, 2021
Top lad who is a credit to himself to Reading FC and his family.
Top man
— Guillaume Rivaud (@guirivaud) April 28, 2021
Sign this man permanently or we riot!
— Cameron Xavier (@CJX_92) April 28, 2021
Athugasemdir