Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mið 29. maí 2019 14:02
Arnar Daði Arnarsson
Landsliðshópurinn sem fer til Finnlands - Margar óreyndar
Karólína Lea er í landsliðshópnum.
Karólína Lea er í landsliðshópnum.
Mynd: Anna Þonn - fotbolti.net
Hlín Eiríksdóttir er í hópnum.
Hlín Eiríksdóttir er í hópnum.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Jón Þór Hauksson þjálfari kvennalandsliðsins hefur valið landsliðshóp fyrir tvo æfingaleiki gegn Finnlandi í Finnlandi sem fram fara í júní.

Leikirnir fara fram í Espoo og Turku í Finnlandi dagana 13. og 17. júní. Þetta eru lokaleikir liðsins fyrir undankeppni EM sem hefst í lok ágúst.

Töluverðar breytingar eru á hópnum frá síðasta verkefni í Suður-Kóreu en alls gerir Jón Þór tíu breytingar á hópnum.

Guðrún Arnardóttir, Svava Rós Guðmundsdóttir, Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir, Anna Rakel Pétursdóttir, Elísa Viðarsdóttir, Andrea Rán Hauksdóttir, Selma Sól Magnúsdóttir, Sigríður Lára Garðarsdóttir, Lára Kristín Pedersen og Rakel Hönnudóttir eru ekki í leikmannahópnum að þessu sinni.

Inn í hópinn koma þær Áslaug Munda Gunnlaugsdóttir, Guðný Árnadóttir, Karólína Lea Vilhjálmsdóttir, Alexandra Jóhannsdóttir, Sif Atladóttir, Agla María Albertsdóttir, Sara Björk Gunnarsdóttir, Dagný Brynjarsdóttir, Hlín Eiríksdóttir og Margrét Lára Viðarsdóttir.

Tveir nýliðar eru í hópn­um en það eru þær Áslaug Munda Gunnlaugs­dótt­ir og Karólína Lea Vil­hjálms­dótt­ir úr Breiðabliki. Val­ur á flesta fulltrúa í hópnum alls átta og Breiðablik á sjö full­trúa.

Landsliðshópurinn:
Guðbjörg Gunnarsdóttir | Djurgarden
Sandra Sigurðardóttir | Valur
Sonný Lára Þráinsdóttir | Breiðablik
Ásta Eir Árnadóttir | Breiðablik
Áslaug Munda Gunnlaugsdóttir | Breiðablik
Guðný Árnadóttir | Valur
Ingibjörg Sigurðardóttir | Djurgarden
Anna Björk Kristjánsdóttir | PSV
Glódís Perla Viggósdóttir | Rosengard
Sif Atladóttir | Kristianstad
Hallbera Guðný Gísladóttir | Valur
Karólína Lea Vilhjálmsdóttir | Breiðablik
Alexandra Jóhannsdóttir | Breiðablik
Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir | Utah Royals
Dagný Brynjarsdóttir | Portland Thorns
Margrét Lára Viðarsdóttir | Valur
Sara Björk Gunnarsdóttir | Wolfsburg
Hlín Eiríksdóttir | Valur
Agla María Albertsdóttir | Breiðablik
Sandra María Jessen | Leverkusen
Berglind Björg Þorvaldsdóttir | Breiðablik
Elín Metta Jensen | Valur
Fanndís Friðriksdóttir | Valur
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner