Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 29. maí 2021 21:48
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Endurgerð mynd - Úr yngri flokkum í úrslit Meistaradeildarinnar
Mynd: EPA
Það fór ansi skemmtileg mynd í dreifingu á samfélagsmiðlum í kvöld af Reece James, bakverði Chelsea, og Phil Foden, leikmanni Manchester City.

Á myndinni eru þeir í baráttu í yngri flokkunum á Englandi, James með Chelsea og Foden með Man City.

Þeir hafa farið langa leið frá því þessi mynd var tekin en þeir endurgerðu myndina í kvöld.

Á nýju myndinni má sjá þá í baráttu í úrslitaleik Meistaradeildarinnar í Porto í Portúgal.

James hafði betur gegn Foden í kvöld, en það er spurning hvernig fór þegar fyrri myndin var tekin.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner