Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
   lau 29. maí 2021 15:23
Victor Pálsson
Garcia staðfestir endurkomu til Barcelona
Mynd: Getty Images
Eric Garcia, leikmaður Manchester City, hefur staðfest það að hann sé að snúa aftur til Barcelona.

Þessi 20 ára gamli leikmaður hefur verið orðaður við endurkomu í dágóðan tíma en tækifærin hafa verið fá í Manchester.

Garcia hefur spilað 35 leiki síðustu tvö tímabil fyrir Man City en aðeins 12 af þeim komu á þessu tímabili.

Þrátt fyrir það á varnarmaðurinn að baki sjö landsleiki fyrir aðallið Spánar og mun nú leika fyrir uppeldisfélagið á ný.

Garcia kom til Man City fyrir þremur árum síðan en var í akademíu Börsunga frá 2008 til 2018.
Athugasemdir
banner
banner
banner