Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   lau 29. maí 2021 12:40
Jóhann Þór Hólmgrímsson
John Terry mættur til Portúgal að styðja sitt gamla félag
Mynd: Getty Images
John Terry er mættur til Portúgal að fylgjast með leik Mancheseter City og Chelsea í úrslitum Meistaradeildarinnar í kvöld.

Hann flaug út ásamt eiginkonu sinni með einkaflugvél. Hann sýnir frá ferðalaginu sínu og Instagram síðu sinni @Johnterry.26.

Terry er algjör goðsögn hjá Chelsea en hann spilaði 717 leiki fyrir félagið frá árunum 1998 til 2017. Hann kláraði ferilinn hjá Aston Villa og er aðstoðarþjálfari þar í dag.

Terry tók við fyrirliðabandinu af Marcel Desailly árið 2004 og hann lifti Meistaradeildar bikarnum árið 2012 þegar liðið vann Bayern Munchen í úrslitum. Terry gat ekki tekið þátt í þeim leik þar sem hann tók út leikbann.
Athugasemdir
banner
banner
banner