Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   lau 29. maí 2021 22:05
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Kante fær tíu! - Einkunnir í úrslitaleiknum
Kante með Meistaradeildarbikarinn.
Kante með Meistaradeildarbikarinn.
Mynd: EPA
N'Golo Kante var stórkostlegur í úrslitaleik Meistaradeildarinnar í kvöld, þegar Chelsea vann 1-0 sigur á Manchester City.

„Stórkostleg tækling á De Bruyne snemma í seinni hálfleiknum sýndi gæði hans. Vann boltann hvað eftir annað. Maður leiksins og hann er bara ótrúlegur," segir í einkunnagjöf football.london sem má lesa hérna.

Kante fær tíu hjá football.london. Frammistaða hans verðskuldar það.

Joe Cole, fyrrum leikmaður Chelsea, segir að Kante sé besti liðsmaður í heimi, það vilji allir vera með honum í liði.

Hann fékk einnig hæstu einkunn hjá Sky Sports - ásamt öðrum - en einkunnagjöf þeirra má sjá hér að neðan.

Einkunnir Man City:
Ederson - 6
Kyle Walker - 7
John Stones - 6
Ruben Dias - 6
Oleksandr Zinchenko - 4
Ilkay Gundogan - 4
Bernardo Silva - 3
Riyad Mahrez - 5
Raheem Sterling - 4
Phil Foden - 5
Kevin de Bruyne - 6
(Jesus - 6, Fernandinho - 6, Aguero - 5)

Einkunnir Chelsea:
Edouard Mendy - 7
Cesar Azpilicueta - 9
Thiago Silva - 7
Antonio Rudiger - 8
Reece James - 8
Jorginho - 8
N'Golo Kante - 9
Ben Chilwell - 9
Mason Mount - 8
Timo Werner - 7
Kai Havertz - 9
(Christensen - 8, Pulisic - 7, Kovacic - 6)
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner