Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   lau 29. maí 2021 05:55
Brynjar Ingi Erluson
Meistaradeildin í dag - Enskur úrslitaleikur í Porto
Manchester City mætir Chelsea
Manchester City mætir Chelsea
Mynd: Getty Images
Chelsea og Manchester City eigast við í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu í kvöld. Leikurinn hefst klukkan 19:00.

Liðin eigast við á Estadio Do Dragao-leikvanginum í Porto en leikurinn átti þó upphaflega að fara fram á Atatürk-vellinum í Istanbúl í Tyrklandi.

Leikurinn var færður þar sem Tyrkland var á rauðum lista hjá Bretlandseyjum þar sem tala smitaðra hækkaði verulega.

Chelsea hefur einu sinni unnið Meistaradeildina en sá titill kom árið 2012. Þetta er í fyrsta sinn sem City kemst í úrslitaleik keppninnar.

Leikur dagsins:
19:00 Chelsea - Manchester City
Athugasemdir
banner
banner
banner