Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 29. maí 2021 16:50
Victor Pálsson
Rudiger var afar nálægt því að yfirgefa Chelsea
Mynd: Getty Images
Antonio Rudiger segir að hann hafi verið nálægt því að yfirgefa Chelsea í sumar eins og sögusagnirnar sögðu á þeim tíma.

Rudiger var ekki fyrsti maður á blað undir Frank Lampard til að byrja með en vann sér hægt og rólega inn sæti í liðinu.

Eftir komu Thomas Tuchel hefur Rudiger fengið mikið að spila en Chelsea leikur í úrslitaleik Meistaradeildarinnar gegn Manchester City í kvöld.

Paris Saint-Germain og Tottenham sýndu Rudiger áhuga sem ákvað að lokum að vera um kyrrt.

„Þegar ég horfi til baka þá kom tímapunktur þar sem ég vildi fara," sagði Rudiger í samtali við Mirror.

„Ef þú hugsar um aldurinn minn og svo sumarið sem var framundan og EM. Ég sá sjálfan mig ekki í hópnum fyrsta mánuðinn svo ég hugsaði um að fara."

„Við vorum ansi nálægt því en það voru engar alvöru viðræður farnar af stað. Svo varð ég áfram. Ég ræddi við Frank Lampard og fékk sæti í hópnum."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner