Barcelona vill Díaz frá Liverpool - Úlfarnir skoða markverði - City til í að hlusta á tilboð í Grealish
   lau 29. maí 2021 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Sarri og Nuno orðaðir við Lazio
Maurizio Sarri gæti tekið við Lazio
Maurizio Sarri gæti tekið við Lazio
Mynd: Getty Images
Maurizio Sarri og Nuno Espirito Santo eru í baráttunni um þjálfarasætið hjá Lazio ef marka má ítalska og portúgalska miðla í dag.

Sarri hefur verið án vinnu síðan hann þjálfaði Juventus tímabilið 2019-2020 en áður hefur hann stýrt Chelsea, Napoli og Empoli þar sem ferill hans fór á flug.

Hann hefur rætt við nokkur ítölsk félög undanfarin misseri en Lazio hefur þó sýnt honum mestan áhuga.

Samkvæmt portúgalska miðlinum Longo er þá Jorge Mendes, umboðsmaður Nuno Espirito Santo, að ræða við Lazio en Nuno hætti með Wolves á dögunum eftir að hafa þjálfað liðið í fjögur ár.

Simone Inzaghi er að taka við Inter á næstu dögum og því staðan að losna hjá Rómarliðinu en Inzaghi hefur gert frábæra hluti á síðustu árum.
Athugasemdir
banner
banner
banner