Úrslitaleikur Meistaradeildarinnar fer fram í kvöld en ensku liðin Manchester City og Chelsea mætast.
Leikurinn fer fram á Estadio Do Dragao-leikvanginum í Porto en leikurinn átti þó upphaflega að fara fram á Atatürk-vellinum í Istanbúl í Tyrklandi.
Leikurinn var færður þar sem Tyrkland var á rauðum lista hjá Bretlandseyjum þar sem tala smitaðra hækkaði verulega.
Goal birti skemmtilegt 'GIF' á Twitter síðu sinni sem sýnir alla sigurvegara Meistaradeildarinnar, hvort verður það City eða Chelsea sem sigrar í kvöld?
Every winner of the UEFA Champions League 🏆
— Goal (@goal) May 29, 2021
Who's next? 🤩#UCLFinal pic.twitter.com/fXM24ophvV
Athugasemdir