banner
   lau 29. maí 2021 19:49
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Sjáðu markið: Kai Havertz kom Chelsea yfir
Mynd: EPA
Chelsea er komið yfir í úrslitaleik Meistaradeildarinnar gegn Manchester City.

Fyrri hálfleikurinn hefur verið fjörugur og fékk Timo Werner fín færi til að skora. Hann á hins vegar erfitt með að setja boltann í markið og hefur það verið saga tímabilsins hjá honum.

Undir lok fyrri hálfleiksins tók Lundúnaliðið forystuna þegar Kai Havertz skoraði eftir frábæra sendingu Mason Mount.

Hægt er að sjá markið með því að smella hérna.

Chelsea fer með 1-0 forystu í hálfleik. Það verður gaman að sjá hvernig seinni hálfleikurinn spilast.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner