lau 29. maí 2021 22:11
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
„Við erum besta lið heims, ekki hægt að taka það af okkur"
Mason Mount.
Mason Mount.
Mynd: EPA
„Draumur minn hefur verið að vinna titil með Chelsea," sagði Mason Mount eftir úrslitaleik Meistaradeildarinnar.

Chelsea lagði Manchester City að velli í kvöld í úrslitaleiknum, 1-0. Mount hefur verið einn besti maður Chelsea á tímabilinu og hann lagði upp sigurmarkið í kvöld. Hann er uppalinn hjá félaginu og einstaklega sætt fyrir hann.

„Við spiluðum á móti mjög góðum liðum, en komumst í úrslitaleikinn og unnum hann. Þetta er mjög sérstakt og við erum besta lið heims, það er ekki hægt að taka það af okkur."

„Man City er þvílíkt gott lið. Þið sáið hvað þeir gerðu í ensku úrvalsdeildinni. Þetta var rosalega erfiður leikur. Við skoruðum og vörðumst vel eftir það. Við skildum allt eftir á vellinum og unnum leikinn. Hvað er hægt að segja? Pabbi minn var að koma úr stúkunni og ég byrjaði að gráta. Ég þakka fjölskyldu minni fyrir allt."

Mount bætti við að hann vonaðist til að berjast um sigur í ensku úrvaalsdeildinni á næstu leiktíð.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner