Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 29. maí 2021 18:43
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Willock, Cavani og Klopp verðlaunaðir
Willock endaði tímabilið frábærlega með Newcastle.
Willock endaði tímabilið frábærlega með Newcastle.
Mynd: EPA
Enska úrvalsdeildin kláraðist um síðustu helgi og eru Íslendingar margir örugglega farnir að sakna deildarinnar mikið.

Deildin er búin að gefa út verðlaun fyrir besta leikmanninn, besta stjórann og besta markið í síðasta mánuði tímabilsins.

Joe Willock, leikmaður Newcastle, var verðlaunaður fyrir að vera leikmaður mánaðarins. Hann endaði tímabilið frábærlega og er spurning hvar hann spilar á næsta tímabili. Miðjumaðurinn var í láni frá Arsenal en Newcastle vill kaupa hann.

Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, var stjóri mánaðarins eftir að stýrt Liverpool í Meistaradeildina.

Þá átti Edinson Cavani besta mark mánaðarins. Markið skoraði hann í jafntefli gegn Fulham.




Athugasemdir
banner
banner
banner