Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   mán 29. júní 2020 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
England í dag - Crystal Palace mætir Burnley
Mynd: Getty Images
Crystal Palace tekur á móti Burnley í eina leik dagsins í enska boltanum.

Liðin eru jöfn á stigum um miðja deild, fimmtán stigum frá fallsvæðinu og tíu stigum frá Evrópubaráttu.

Bæði lið eru að glíma við mikil meiðslavandræði þar sem nokkrar af helstu stjörnum beggja liða eru fjarverandi.

Heimamenn í Crystal Palace verða án Martin Kelly, Jeffrey Schlupp og James Tomkins sem eru fjarverandi vegna meiðsla. Þá er ólíklegt að stjörnuleikmenn liðsins, þeir Wilfried Zaha og Christian Benteke, verði búnir að ná sér í tæka tíð fyrir upphafsflautið.

Jóhann Berg Guðmundsson er tæpur í liði Burnley, rétt eins og Robbie Brady, Chris Wood og Jay Rodriguez. Ashley Barnes og Ben Gibson verða ekki með.

Leikur kvöldsins:
19:00 Crystal Palace - Burnley (Síminn)
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 34 24 5 5 82 26 +56 77
2 Liverpool 34 22 8 4 75 34 +41 74
3 Man City 32 22 7 3 76 32 +44 73
4 Aston Villa 34 20 6 8 71 50 +21 66
5 Tottenham 32 18 6 8 65 49 +16 60
6 Man Utd 33 16 5 12 51 50 +1 53
7 Newcastle 33 15 5 13 69 54 +15 50
8 West Ham 34 13 9 12 54 63 -9 48
9 Chelsea 32 13 8 11 61 57 +4 47
10 Bournemouth 34 12 9 13 49 60 -11 45
11 Brighton 32 11 11 10 52 50 +2 44
12 Wolves 34 12 7 15 46 54 -8 43
13 Fulham 34 12 6 16 50 54 -4 42
14 Crystal Palace 34 10 9 15 44 56 -12 39
15 Brentford 34 9 8 17 52 59 -7 35
16 Everton 34 11 8 15 36 48 -12 33
17 Nott. Forest 34 7 9 18 42 60 -18 26
18 Luton 34 6 7 21 47 75 -28 25
19 Burnley 34 5 8 21 37 69 -32 23
20 Sheffield Utd 34 3 7 24 33 92 -59 16
Athugasemdir
banner
banner