Ítalski miðillinn La Gazzetta dello Sport heldur því fram að Chelsea sé reiðubúið til að borga 100 milljónir evra til að kaupa Mathijs de Ligt frá Juventus.
Chelsea er í leit að tveimur miðvörðum fyrir næstu leiktíð og hefur Thomas Tuchel miklar mætur á De Ligt.
Juventus er þó ekki reiðubúið til að selja hollenska miðvörðinn frá sér fyrir minna heldur en söluákvæði leikmannsins er virði, eða 120 milljónir evra. De Ligt á tvö ár eftir af samningnum við Juve og hefur verið í viðræðum við félagið að undanförnu.
Chelsea er einnig að skoða Kalidou Koulibaly hjá Napoli, Nathan Aké hjá Manchester City og Jules Koundé hjá Sevilla. Koulibaly á aðeins eitt ár eftir af sínum samning, Kounde tvö ár og Ake þrjú.
Athugasemdir