Fréttamaðurinn Graeme Bailey heldur því fram að Middlesbrough sé í viðræðum við Manchester City um bandaríska markvörðinn Zack Steffen.
Steffen má finna sér nýtt félag því Man City er að fá nýjan varamarkvörð á næstu dögum, Þjóðverjann Stefan Ortega.
Joe Lumley varði mark Boro á síðustu leiktíð en félagið hefur ákveðið að lána hann yfir til Reading í eitt ár og finna sér nýjan aðalmarkvörð.
Það er hlutverk sem Steffen á að leysa en félagið mun þurfa að borga nokkrar milljónir punda fyrir markvörðinn.
Steffen er 27 ára gamall og hefur spilað 29 landsleiki fyrir Bandaríkin.
Hann á 21 leik að baki á tveimur árum hjá Man City.
Athugasemdir